Betri Yfirdráttur

Tímabundið lán til að mæta óvæntum útgjöldum

Yfirdráttur er alltaf dýr! Við viljum hjálpa þér að losa þig við hann aftur! Gerðu plan og lækkaðu yfirdráttinn jafnt og þétt!

Betri yfirdráttur

Hvernig virkar yfirdráttur?

Yfirdráttur er alltaf dýr!

Yfirdráttur er dýrt lán og því ætti alltaf að hugsa hann sem tímabundið lán til að mæta óvæntum útgjöldum.

Við hönnuðum yfirdráttinn okkar með það sérstaklega í huga að það ætti að vera hvetjandi að losna við yfirdráttinn sem fyrst. Þú getur bæði gert plan til að lækka hann niður til að halda í sveigjanleikann - eða tekið indó lán á betri vöxtum til að borga hann niður.

indó app
Hvernig virkar yfirdráttur?

Þegar þú sækir um yfirdrátt hefurðu tæknilega séð ekki fengið peninginn lánaðan. Þú ert að fá leyfi - eða yfirdráttarheimild - frá okkur til að taka lán. Þegar þú hefur svo klárað peninginn á debetreikningnum byrjar þú að nota yfirdráttinn. Þá ertu að fá lánað - og borgar vexti af þeirri upphæð.

indó app
Hvað kostar að vera með yfirdrátt?

Það er enginn aukakostnaður við að taka yfirdráttinn: engin lántökugjöld, breytingagjöld né önnur gjöld.

Yfirdráttur er dýr vegna vaxtanna. Við rukkum þig vexti í lok hvers mánaðar - af þeirri upphæð sem þú notar af yfirdrættinum. Ef þú notar yfirdráttarheimildina ekkert, borgar þú ekkert.

indó app